Bera saman útgáfur

Lykill

  • Þessari línu var bætt við.
  • Þessi hlekkur var fjarlægður.
  • Snið breyttist.

Fyrir nokkrum árum síðan var gerð úttekt á leyfamálum ríkisins, sem kynnt var haustið 2016 á morgunverðarfundi með tæknifólki ríkisins í Hörpu. Niðurstaða þeirrar greiningar var að bæta þyrfti yfirlit yfir leyfamál og að kostnaður ríkisins væri um 800 m.kr. árlega vegna Microsoft leyfa. Haustið 2017 fór af stað frekari greiningarvinna, þar sem upplýsingum frá stofnunum var safnað saman til að fá sem besta heildaryfirlit yfir leyfamál hjá ríkinu. Í kjölfarið var gegnið til samninga við Microsoft og ákveðið að einbeita sér að skrifstofuhugbúnaði (desktop) en að taka þjóna og gagnagrunnsleyfi í framhaldi.

Þann 1. júní 2021 var samningurinn við Microsoft endurnýjaður með stærri skrefum inn í öruggara og sveigjanlegra vinnuumhverfi. Öll leyfi ríkisins verða uppfærð með tilliti til netöryggis og persónuverndar. Keypt verða E5 leyfi fyrir stjórnsýsluna og allar A-hluta stofnanir að undanskildum mennta- og háskólum, alls um 13.100 leyfi. Með því starfa opinberar stofnanir í hugbúnaðarumhverfi með mesta mögulega öryggi sem uppfyllir GDPR (persónuvernd) og allar /wiki/spaces/MSLSD/pages/168394960helstu hagaðila, s.s. dulkóðun gagna, varnir gegn netárásum og vírusvarnir o.fl.

Markmið nýs samnings er að auðvelda fólki að sinna sinni vinnu, óháð staðsetningu, en á sama tíma að auka til muna öryggi notendaauðkenningar og þeirra upplýsinga sem unnið er með.  Með tveggja þátta auðkenningu, ásamt gervigreindargreiningu á innskráningu notenda, vörnum gegn auðkennaþjófnaði í tölvupósti (phishing) og greiningu á óeðlilegri hegðun hugbúnaðar, er hægt að lágmarka til muna áhættuna á auðkennaþjófnaði og aðgengi óviðkomandi aðila að vinnuumhverfi starfsmanna ríkisins. 

Spurningar og svör um samninginn.

Verndun upplýsinga verður sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda.  Starfsmenn geta merkt skjöl eftir mikilvægi og því trúnaðarstigi sem þarf að ríkja um upplýsingarnar hverju sinni, ásamt því sem reglur geta takmarkað aðgengi og dreifingu skjala eftir innihaldi þeirra.

Vinnutækjum er stjórnað og aðgengi heft ef öryggisstillingar og ástand tækja uppfyllir ekki lágmarks öryggiskröfur.

Miðlæg öryggisgátt gefur kerfisstjórum skýjageira heildrænt yfirlit yfir stöðu öryggismála, ábendingar um viðbætur og það sem má betur fara, hugsanleg öryggisbrot og notendaauðkenni sem nauðsynlegt er að skoða nánar.

Til viðbótar felur nýr samningur í sér aðgengi allra starfsmanna ríkisins að Power BI umhverfinu, sem gerir stofnunum auðveldara fyrir að deila upplýsingum á stærri hóp neytenda (hvort sem það eru starfsmenn viðkomandi stofnunar, starfsmenn annara stofnana eða ráðuneyta eða almenningur á opinberu vefsvæði).  Mörg tækifæri til hagræðingar geta falist í að viðhalda stjórnborði upplýsinga á sjálfvirkan hátt, í stað þess að dreifa upplýsingum reglulega á handvirkan hátt. 

Power Automate er þjónusta sem gerir notendum kleift að sjálfvirknivæða handvirka og tímafreka ferla. Starfsfólk getur þannig varið tíma sínum betur í önnur mikilvægari verkefni.

Teams símkerfi verður aðgengilegt öllum stofnunum sem hafa áhuga á að færa símavirkni starfsmanna í Teams biðlarann, og sameina þar aukinn fjölbreytileika samskipta í sameinuðu umhverfi.

Framundan er spennandi vegferð sem felur í sér að virkja og innleiða þessar spennandi nýjungar inn á skýjageira ríkisins og vefa sífellt þéttari öryggisvef um notendur og upplýsingar í opinberri stjórnsýslu, á sama tíma og frelsi fólks er stóraukið með víðtæku aðgengi að vinnuumhverfi sínu, samvinnu á milli starfsfólks og stofnana.

Upplýsingar

Við hvað styður verkefnið?

Verkefnið styður aukið hagræði í nýtingu samræmdra hugbúnaðarlausna. Með því að koma öllum stofnunum ríkisins á nýjan tæknigrunn opnast tækifæri á auknum og sveigjanlegum samskiptamáta með öruggum hætti milli og innan stofnana. Verkefnið styður einnig aukið gagnaöryggi og bættum rekstri fyrir allar stofnanir.

Sýna undirsíður
Upplýsingar

Um hvað snýst verkefnið?

Þann 1. júní 2018 keypti Fjármálaráðuneytið, fyrir hönd A-hluta stofnana ríkisins, hugbúnaðarleyfi fyrir Microsoft hugbúnaðarlausnir fyrir skrifstofuumhverfi.

Verkefnið sem nefnt hefur verið Pólstjarnan

Þann 1. júní 2021 var samningurinn endurnýjaður eftir samþykki í ríkisstjórn og gildir hann til fimm ára. Verkefnið snýr að skipulagningu og undirbúningi á innleiðingu á

þessum hugbúnaðarlausnum.

samræmdum skrifstofuhugbúnaði ríkisins.

Upplýsingar

Af hverju er verkefnið unnið?

Hagræði ríksins í því að kaupa þessar hugbúnaðarlausnir frá Microsoft snýst ekki einvörðungu um sameiginleg innkaup hugbúnaðarlausna, heldur frekar að réttri nýtingu þeirra.

Pólstjörnuverkefnið

Verkefnið mun stuðla að því að tryggja rétta innleiðingu og nýtingu lausnanna hjá stofnunum ríkisins. Rétt innleiðing snýr meðal annars að tæknilegum uppsetningum, öryggi gagna, nýtingu nýrra samvinnumöguleika, samnýtingu þekkingar og samræmingu vinnuumhverfa.

Upplýsingar

Fyrir hverja er verkefnið unnið?

Verkefnið

mun snerta flesta starfmenn

snertir allt starfsfólk A-hluta stofnana ríkisins, eða um 11% starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði (tölur byggðar á “Tölur og útgefið efni” Fjármála- og efnahagsráðuneytisins). Auk þess snertir það

marga

nemendur í ríkisreknum framhaldsskólum og háskólum

.

Við hvað styður verkefnið?

Verkefnið styður aukið hagræði í nýtingu samræmdra hugbúnaðarlausna. Með því að koma öllum stofnunum ríkisins á nýjan tæknigrunn opnast tækifæri á auknum og sveigjanlegum samskiptamáta með öruggum hætti milli og innan stofnana

.

Verkefnið styður einnig aukið gagnaöryggi og bættum rekstri fyrir allar stofnanir.
children