Bera saman útgáfur

Lykill

  • Þessari línu var bætt við.
  • Þessi hlekkur var fjarlægður.
  • Snið breyttist.

Stofnun sem stendur utan Microsoft 365 umhverfis ríkisins, en á skv. skipulagi að vera hluti af því umhverfi, getur sótt um aðild með því að fylla út formið hér að neðan og samþykkja notkunarskilmála rekstraraðila og verðskrá.

\uD83D\uDCD8 Leiðbeiningar

Tæknilegur eða stjórnunarlegur tengiliður stofnunar getur opnað formið hér að neðan og veitt þær upplýsingar sem óskað er eftir til þess að hægt sé að hefja undirbúning að innleiðingu stofnunarinnar.

  1. Opna umsóknarformið hér, fylla út umbeðnar upplýsingar

  2. Smella á hlekki að notkunarskilmálum og verðskrá, kynna sér það vandlega og staðfesta með því að setja hak í viðkomandi reit, að stofnunin gangist undir skilmála og verðskrá rekstraraðila

  3. Smella á “Submit” hnappinn neðst í forminu, til þess að hefja formlega undirbúning að innleiðingu í Microsoft 365 umhverfi ríkisins.

Upplýsingar

Þjónustuskilmálar Umbru vegna rekstrar á Microsoft 365 umhverfi ríkisins: Lesa hér

Gjaldskrá fyrir þjónustu við stofnanir í Microsoft 365 umhverfi ríkisins: Lesa hér

Persónuverndarskilmálar Umbru vegna rekstrar á Microsoft 365 umhverfis ríkisins: Lesa hér

\uD83D\uDCCB Nauðsynlegar upplýsingar og staðlar

Í undirbúningi að innleiðingu í Microsoft 365 umhverfi ríkisins, er nauðsynlegt að kynna sér vandlega þá staðla sem arkitektaráð hefur samþykkt og gefið út, sem tilgreinir hvernig umhverfi stofnanna þarf að líta út, svo ekki komi til árekstra við aðrar stofnanir í umhverfinu.

...