Þjónustugjöld

Samkvæmt rekstrarsamningi er skýjageira heimilt að innheimta þjónustugjöld af þeim stofnunum sem sækja þjónustu við notkun sína á skýjageira í rekstri hjá skilgreindum þjónustuaðila.  Samræmd verðskrá er fyrir innheimtu slíkrar þjónustu á öllum skýjageirum ríkisins, til þess að tryggja gagnsæi og samþættingu slíkra gjalda á allar A-hluta stofnanir ríkisins.

Þjónustugjald er tvískipt.  Annarsvegar er mánaðarlegt grunngjald stofnunar sem er innheimt eftir þremur stærðarflokkum, að viðbættu gjaldi fyrir hvern starfsmann stofnunarinnar sem þjónustuna sækir.  Saman mynda þessir tveir þættir þjónustugjald stofnunarinnar til rekstraraðila í hverjum mánuði.

Fjársýsla ríkisins innheimtir og greiðir rekstraraðila þjónustugjaldið á grunni fjölda og stærð þjónustuþega og notendafjölda hjá þeim.

Greitt er eftir á fyrir yfirstandandi mánuð frá því að pöntun er gerð.

 

Rekstraraðila innheimta þjónustugjöld í samræmi við þá sérþjónustu sem þeir veita sínum viðskiptavinum. Gjaldskrá er ekki samræmd nema að hluta.

Fjársýslan sér einungis um útgáfu reikninga vegna þessara gjalda.

Vinsamlega beinið öllum fyrirspurnum varðandi þjónustugjöld til viðeigandi þjónustuaðila

Almenn þjónustugjöld rekstraraðila skýjageira

 

Gjöld

Stærðafl.

Mánaðargjald kr. án/vsk

Stofnanagjald 1 – 15 starfsmenn

1

7.500

Stofnanagjald 16 – 50 starfsmenn

2

15.000

Stofnanagjald 51 og fleiri starfsmenn

3

25.000

Notendagjald pr. notanda 1

1-3

360

Menntastofnanir

 

Ársgjald kr. án/vsk

Nemendagjald pr. notanda 2

1-3

200

Menntaský

1 Notendagjald bætist við hvert keypt M365 E5 leyfi.

2 Nemendafjöldi er tekin 1. Október ár hvert.

Rekstraraðila er frjálst að bjóða þjónustuþegum viðbótarþjónustu skv. eigin verðskrá og skal hún veitt á grunni skriflegra samninga milli rekstraraðila og þjónustuþega.

Þjónustugjöld Umbru

Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins innheimtir mánaðarleg þjónustugjöld fyrir stofnanir sem tilheyra publicadministrationis.onmicrosoft.com og judicialis.onmicrosoft.com skýjageirana.

Þjónustugjöldum er ætlað að standa undir þeirri starfsemi sem notkun stofnana á samræmdu skrifstofuumhverfi ríkisins krefst.

Gjaldskrána má nálgast á þessum hluta vefsíðu Umbru.