Microsoft hefur lagt mikla áherslu á að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að uppfylla staðla, lög og reglugerðir, s.s. GDPR/persónuverndarlögin. Með nýja samningnum geta stofnanir notað öll helstu öryggistól Microsoft og nýtt sér þau til að uppfylla nauðsynleg skilyrði algengra staðla, laga og reglugerða. Microsoft uppfyllir að sínu leiti GDPR, m.a. með því að tryggja að gögn séu geymd í gagnaverum innan EES svæðisins. Stofnanir bera ábyrgð á eigin gögnum og þurfa því að fara eftir persónuverndarlögum, m.a. með áhættugreiningum. Eftirfarandi eru upplýsingasíður og myndefni um GDPR, Microsoft og tólin sem hægt er að nýta:
Compliance Manager - Dæmi um nær einstakt tól sem getur hjálpað stofnunum að vera í samræmi m.a. við persónuverndarlögin
Vinnslusamningur er innifalinn í þjónustuskilmálum frá Microsoft, sjá sérstaklega viðhengi 3 (Attachment 3, "The Standard Contractual Clauses (Processors)") í skilmálunum sem hægt er að skoða hér , en einnig "Data Protection Terms" kaflann og viðhengi 4 (Attachment 4, "European Union General Data Protection Regulation Terms").
Könnun Persónuvernd Hollands á Office 365 ProPlus (og öðrum útgáfum)
Samantekt af Data Protection Impact Assessment af Microsoft Office af hálfu Hollenska ríkisins hér.