Orri - Vörustýring

Oracle vörustýring er hluti af fjárhagskerfi ríkisins og tekur á innkaupum, lagerhaldi  og  dreifingu vara til endanotenda. Helstu kostir vörustýringar eru  miklir  möguleikar  til  sjálfvirknivæðingar, notkun  strikamerkja  í lagerhaldi,  flutningum  og  áfyllingum  á  deildarlagera  (KanBan). Mikil samþætting  við  fjárhag  býður  upp á sjálfvirka afstemmingu reikninga við pantanir, auk þess sem bókunarupplýsingar fylgja notanda og pöntun alla leið í fjárhag. Öll millideildarviðskipti eru nú þegar pappírslaus, t.d. sala lagera og eldhúss til deilda.

Rafræn viðskipti eru vel studd, pantanir sendar á XML formi til birgja og reikningar frá   birgjum. Kerfið er í notkun hjá Vegagerðinni, Landspítala-háskólasjúkrahúsi og  Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Einnig nota nokkrir minni aðilar smá hluta þess.