Orri - Vörustýring
Oracle vörustýring er hluti af fjárhagskerfi ríkisins og tekur á innkaupum, lagerhaldi og dreifingu vara til endanotenda. Helstu kostir vörustýringar eru miklir möguleikar til sjálfvirknivæðingar, notkun strikamerkja í lagerhaldi, flutningum og áfyllingum á deildarlagera (KanBan). Mikil samþætting við fjárhag býður upp á sjálfvirka afstemmingu reikninga við pantanir, auk þess sem bókunarupplýsingar fylgja notanda og pöntun alla leið í fjárhag. Öll millideildarviðskipti eru nú þegar pappírslaus, t.d. sala lagera og eldhúss til deilda.
Rafræn viðskipti eru vel studd, pantanir sendar á XML formi til birgja og reikningar frá birgjum. Kerfið er í notkun hjá Vegagerðinni, Landspítala-háskólasjúkrahúsi og Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Einnig nota nokkrir minni aðilar smá hluta þess.